LV-2017/094 - Fiskirannsóknir á vatnasviði Lagarfljóts og Gilsár 2016
Nánari upplýsingar |
Titill |
LV-2017/094 - Fiskirannsóknir á vatnasviði Lagarfljóts og Gilsár 2016 |
Undirtitill |
Hafrannsóknastofnun HV 2017-034 |
Lýsing |
Veitt var með netum af mismunandi möskvastærðum (netaröðum) á þremur stöðum í Lagarfljóti. Lagðar voru tvær netaraðir á hverjum stað í tvær nætur. Alls veiddust 211 bleikjur og 119 urriðar, auk fjögurra laxaseiða. Þetta er svipuð bleikjuveiði og árið 2014. Urriðaveiðin var heldur lægri miðað við afla á sóknareiningu samanborið við 2014, þó breytilegt sé á milli staða hversu mikið það er. Minnkun má sjá í þéttleika bleikju og urriða á öllum veiðistöðum, metið sem breyting í afla á sóknareiningu, á milli tímabilanna fyrir virkjun annars vegar og eftir virkjun hins vegar. Einnig hefur dregið úr vexti bæði bleikju og urriða. Breytingar hafa komið fram í fæðu bleikju. T.d. hefur hlutfall rykmýslirfa aukist mjög í fæðu bleikju sem veiddist við Hallormsstað, en hins vegar minnkað í bleikju sem veiddist í Vífilsstaðflóa. Um teljara í fiskvegi í Lagarfossi gengu 57 fiskar upp árið 2016 og í netaveiði neðan Lagarfoss voru skráðir 35 laxar sumarið 2016 og 1 lax sumarið 2015. |
Skráarviðhengi |
|
Höfundar |
Nafn |
Ingi Rúnar Jónsson |
Nafn |
Friðþjófur Árnason |
Nafn |
Hafrannsóknastofnun |
Flokkun |
Flokkur |
Vatnalíf |
Útgáfuár |
2017 |
Útgefandi |
Landsvirkjun |
Leitarorð |
Kárahnjúkar, Fljótsdalsstöð, Lagarfljót, Jökla,
Jökulsá á Dal, vatnalíf, fiskur, vöktun, bleikja, lax, urriði |