LV-2019/065 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði
Nánari upplýsingar |
Titill |
LV-2019/065 - Gróðurstyrking við Hálslón og á Hraunum, Fljótsdalsheiði |
Undirtitill |
Framkvæmdir og framvinda 2019 |
Lýsing |
Frá árinu 2009 hefur áburði verið dreift á gróðursnauð svæði austan Hálslóns svo koma megi upp gróðri sem gæti staðist og bundið hugsanlegt áfok úr lónstæði. Heildarstærð uppgræðslusvæðis þar er nú um 780 ha. Árangur hefur verið mjög góður flest árin. Vel hefur árað undanfarin ár þangað til í ár, sem var gróðri sumpart óhagstætt. Svæðin komu ágætleg undan vetri og hægt var að hefja dreifingu á venjulegum tíma eða um mánaðarmótin júní/júlí. Árið 2012 hófst uppgræðsla með áburðargjöf og sáningu á Hraunum, röskuðum, fyrrum framkvæmdasvæðum. Svæðin eru almennt rýr, hátt yfir sjó og erfið í uppgræðslu. Þessi svæði eru nú flest komin vel á veg svo ekki var borinn áburður á þau þetta árið. Ekki var heldur borið á svæðin umhverfis aðgöngin þetta árið, nema að fyrir fremur árum hófst uppgræðsla á haugssvæði utarlega í Tungu á milli Glúmsstaðadals og Þuríðarstaðadals, og var haldið áfram þar í sumar. Alls eru uppgræðslusvæðin við Hálslón, á Hraunum og við aðgöng nú rúmlega 900 ha. |
Skráarviðhengi |
|
Höfundar |
Nafn |
Rúnar Ingi Hjartarson |
Nafn |
Landgræðsla ríkisins |
Flokkun |
Flokkur |
Gróðurstyrking |
Útgáfuár |
2019 |
Útgefandi |
Landsvirkjun |
Leitarorð |
Gróðurstyrking, framvinda, dreifing, áburður,
uppgræðsla, Hálslón, áfok, á Hraunum, sáning,
Fljótsdalsheiði. 443 |