LV-2014/121 - Vöktun á áfoki í Kringilsárrana
Nánari upplýsingar |
Titill |
LV-2014/121 - Vöktun á áfoki í Kringilsárrana |
Undirtitill |
LV-2014/121 |
Lýsing |
Að beiðni Landsvirkjunar var settur upp búnaður til að hægt væri að fylgjast með tíðni og, eftir föngum magni, áfoks frá lónstæði Hálslóns og inn á Kringilsárrana. Settar voru upp þrjár mælistöðvar sem byggja á Sensit kornateljurum ásamt hita- og vindmælum.
Ríkjandi vindáttir og landslag ræður miklu um líkur á áfoki. Sumarið 2014 mældist lítið áfok á tveimur stöðvum en talsvert á þeirri þriðju. Þar mældist áfok sem nam allt að 1,2 t m-1 sem telst umtalsvert. Einungis þurfti vind sem nam 4 m s-1 sem til að áfok hæfist. Nauðsynlegt er að fylgjast með framvindu á þessum svæðum. |
Skráarviðhengi |
|
Höfundar |
Nafn |
Ágústa Helgadóttir |
Nafn |
Jóhann Þórsson |
Flokkun |
Flokkur |
Gróður |
Útgáfuár |
2014 |
Útgefandi |
Landsvirkjun |
Leitarorð |
Hálslón, Kringilsárrani, áfok, vöktun á áfoki. |