LV-2012-069 Kringilsárrani
Nánari upplýsingar |
Titill |
LV-2012-069 Kringilsárrani |
Undirtitill |
Rannsóknir á gróðurbreytingum með samanburði gervitunglamynda frá 2002 og 2010 |
Lýsing |
Breytingar á ástandi gróðurs í Kringilsárrana voru kortlagðar með samanburði á gervitunglamyndum sem teknar voru með 8 ára millibili. SPOT-5 myndir frá 2002 og 2010 voru notaðar og aðferðin sem beitt var fólst í að reikna út s.k. gróðurstuðul fyrir hvora mynd um sig og draga síðan gróðurstuðulinn 2002 frá gróðurstuðlinum 2010.
Niðurstaðan gefur vísbendingar um að gróður í Kringilsárrana sé almennt í nokkurri framför. Engin örugg merki eru um að ástand gróðurlendisins hafi versnað. Aftur á móti er land augljóslega að gróa upp á nokkrum afmörkuðum stöðum eða blettum þar sem aðstæður eru væntanlega tiltölulega hagstæðar þ.e. í dældum þar sem er nokkuð skjól og hærri grunnvatnsstaða en almennt er. Engin merki eru um að sandfok úr lónsstæði Hálslóns hafi kaffært gróður á eða við lónsbakkana og engar vísbendingar sjást heldur um alvarlegan uppblástur á svæðinu. |
Skráarviðhengi |
|
Höfundar |
Nafn |
Kolbeinn Árnason |
Flokkun |
Flokkur |
Gróður |
Útgáfuár |
2012 |
Útgefandi |
Landsvirkjun |
Leitarorð |
Gróðurframvinda í Kringilsárrana, SPOT-5, gervitunglamyndir, Gróðurstuðull (Normalised Difference Vegetation Index), samanburður á SPOT-5 myndum frá 2002 og 2010. |