LV-2014/096 - Áhrif Kárahnjúkavirjunar á grágæsir
Nánari upplýsingar |
Titill |
LV-2014/096 - Áhrif Kárahnjúkavirjunar á grágæsir |
Undirtitill |
LV-2014/096 |
Lýsing |
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort vatnaflutningar úr Hálslóni yfir í Lagarfljót hefðu áhrif á fjölda grágæsa á fellistöðum á Héraði. Með það fyrir augum voru grágæsir taldar af landi og úr lofti árin 2005 og 2013. Við úrvinnslu var einnig stuðst við óbirtar rannsóknir höfundar á fjölda gæsa í varpi og á fellistöðvum á Héraði. Þá er gerð grein fyrir
niðurstöðum úttektar á áhrifum sauðfjárveikivarnargirðingar meðfram
Jökulsá á Dal á varp- og felligæsir sem framkvæmd var árið 2006.
Lítil breyting varð á fjölda grágæsa í varpi og á fellistöðum á
rannsóknartímabilinu. Alls sáust 7726 grágæsir árið 2005 en 8750 grágæsir
árið 2013. Hin síðari ár hefur grágæsavarp á Héraði þó dregist nokkuð
saman en sams konar þróun má sjá utan jökulvatna. Niðurstöðurnar benda
því til þess að vatnaflutningarnir hafi haft takmörkuð áhrif á tegundina.
Ekki er talin þörf á að fylgjast lengur með grágæsum í tengslum við
Kárahnjúkavirkjun. Áhrif sauðfjárveikivarnargirðingar á grágæsir meðfram
Jöklu voru lítil. |
Skráarviðhengi |
|
Höfundar |
Nafn |
Halldór Walter Stefánsson |
Nafn |
Náttúrustofa Austurlands |
Flokkun |
Flokkur |
Fuglar |
Útgáfuár |
2014 |
Útgefandi |
Landsvirkjun |
Leitarorð |
Grágæs, Kárahnjúkavirkjun. |