LV-2021/046 - Vöktun á áfoki og viðhaldi fokgirðinga við Strönd Hálslóns.
Nánari upplýsingar |
Titill |
LV-2021/046 - Vöktun á áfoki og viðhaldi fokgirðinga við Strönd Hálslóns. |
Undirtitill |
Áfangaskýrsla 2021 |
Lýsing |
Frá árinu 2014 hefur Landgræðslan séð um vöktun og mælingar á áfoki í norðurhluta Kringilsárrana og við austurströnd Hálslóns að beiðni Landsvirkjunar. Landgræðslan hefur einnig haft umsjón með fokgirðingum við Hálslón allt frá því að fyrstu girðingarnar voru settar upp á árunum 2008 og 2009. Farið var í vettvangsferð á svæðið dagana 28.-30. júní þar sem útbreiðsla áfoks var mæld og mælireitir ljósmyndaðir. Jafnframt voru fokgirðingar yfirfarnar og lagfærðar eftir þörfum.
Í Kringilsárrana hefur útbreiðsla áfokssvæða minnkað úr 3,7 ha sumarið 2020 í 2,1 ha 2021 og einungis nyrst í Kringilsárrana voru lítilsháttar ummerki um nýtt áfok. Við austurströnd Hálslóns hafa áfokssvæðin einnig minnkað umtalsvert eða úr 12,2 ha 2020 í 4,7 ha sumarið 2021. Bæði á Lindabungu og Kofaöldu var þó talsvert af nýju efni enda allhvasst og nokkuð áfok þegar úttektin var gerð. |
Skráarviðhengi |
|
Höfundar |
Nafn |
Elín Fjóla Þórarinsdóttir |
Nafn |
Ágústa Helgadóttir |
Flokkun |
Flokkur |
Áfok við strönd Hálslóns |
Útgáfuár |
2021 |
Leitarorð |
Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á áfoki, vöktun, fokgirðinga |