Fara í efni

LV-2023/055 - Landbrot á bökkum Hálslóns í Krintilsárrana.

Nánari upplýsingar
Titill LV-2023/055 - Landbrot á bökkum Hálslóns í Krintilsárrana.
Undirtitill Úttekt 2023
Lýsing

Landgræðslan hefur annast mælingar á landbroti við strönd Hálslóns í Kringilsárrana frá árinu 2013 að beiðni Landsvirkjunar. Venjan er að mælingar fari fram á um 10 km kafla af strandlengju Kringilsárrana en í ár stóð til að sleppa svæðinu sunnan Hrauka. Áætlað var að mæla og skrásetja landbrot á tveimur dögum en vegna veðuraðstæðna var aðeins fært í Ranann annan daginn og því náðist einungis að mæla nyrsta hluti svæðisins þ.e.a.s. upp með Kringilsánni og stuttan spöl suður með austurbakka Ranans. Að auki bilaði
tækjabúnaður og því var ekki mælt eins langt inn með Kringilsánni og venjan er. Úttektin sumarið 2023 náði því einungis til rúmlega 3,3 km af strandlengjunni og flokkaðist 36,8% með mikið landbrot, 36,9% með talsvert landbrot, 10,7% með lítilsháttar landbrot og 15,6% með mjög lítið eða ekkert landbrot. Ekki voru umtalsverðar breytingar á  landbrotinu á þessum hluta strandlengjunnar frá síðasta ári en þó var heldur minna landbrot upp með Kringilsánni en verið hefur.

Skráarviðhengi
Sækja skjal
Höfundar
Nafn Sigurjón Einarsson
Nafn Elín Fjóla Þóransdóttir
Flokkun
Flokkur Gróður
Útgáfuár 2023
Útgefandi Landsvirkjun
Leitarorð Hálslón, Kringilsárrani, landbrot, bakkagerð, halli á bakka, hæð bakka, vöktun