LV-2017/033 - Heiðagæsarannsóknir á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar árið 2016
More info |
Title |
LV-2017/033 - Heiðagæsarannsóknir á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar árið 2016 |
Subtitle |
LV-2017/033 |
Description |
Árið 2016 kannaði Náttúrustaofa Austurlands heiðagæsavarp á völdum
svæðum fyrir Landsvirkjun sem er liður í vöktun fugla á vatnasviði
Kárahnjúkavirkjunar. Í úttektinni voru vörpin í Hafrahvömmum, í
Laugarvalladal og Sauðárdal auk varps á Vesturöræfum norðan Sauðár
skoðuð. Tíðarfar og snjóalög settu mark sitt á varpið sem hófst óvenju
seint og færri varppör reyndu fyrir sér sökum þess sem kom fram sem
fækkun miðað við síðustu mælingar. Varpárangur var engu að síður
ágætur. Að meðaltali voru 3,7 egg í hreiðri og 2,4 ungar fylgdu hverju pari.
Tilraunir með flygildi í varprannsóknum lofuðu góðu sem stofan stefnir á
að beita í ríkari mæli í framtíðinni.
Veruleg aukning varð á fjölda ófleygra heiðagæsa á Snæfellsöræfum í júlí
og og voru tæpar 10.000 heiðagæsir á Eyjabakkasvæðinu, þ.a. 710 ungar
sem er það mesta sem hefur verið talið á svæðinu til þessa. Síðast voru
taldar álíka margar heiðagæsir þar árið 2002. Hlutfall ársgamalla
heiðagæsa á Eyjabakkasvæðinu var 29% og hefur fjöldi þeirra ekki verið
meiri síðan mælingar hófust |
File |
|
Authors |
Name |
Halldór Walter Stefánsson |
Name |
Skarphéðinn G. Þórisson |
Taxonomy |
Category |
Fuglar |
Year |
2017 |
Publisher |
Landsvirkjun |
Keywords |
Heiðagæs, vatnasvið, Kárahnjúkavirkjun |