LV-2022/043 - Vöktun á áfoki og viðhald fokgirðinga við strönd Hálslóns.
More info |
Title |
LV-2022/043 - Vöktun á áfoki og viðhald fokgirðinga við strönd Hálslóns. |
Subtitle |
Áfangaskýrsla 2022 |
Description |
Landgræðslan hefur séð um vöktun og mælingar á áfoki í norðurhluta Kringilsárrana og við austurströnd Hálslóns frá árinu 2014. Landgræðslan hefur einnig haft umsjón með fokgirðingum við Hálslón allt frá því að fyrstu girðingarnar voru settar upp á árunum 2008 og 2009. Farið var í vettvangsferð á svæðið dagana 4.-6. júlí þar sem útbreiðsla áfoks var mæld og valdir mælireitir ljósmyndaðir og gerðar þykktarmælingar á áfoki. Niðurstöður sýndu lítið sem ekkert nýtt áfok og að heildar útbreiðsla áfokssvæða hafði minnkað úr 6,8 ha 2021 í um 3,7 ha 2022. Allar fokgirðingar úr trérimlum sem eftir voru í Kringilsárrana voru fjarlægðar þar sem þær voru farnar að brotna og skapa hættu fyrir hreindýr, en aðrar fokgirðingar bæði nyrst í Kringilsárrana og við austurströnd Hálslóns voru yfirfarnar. Til stóð að fjarlægja einnig fokgirðingar norðan Kringilsár en ekki vannst tími til þess í vettvangsferð sumarsins. |
File |
|
Authors |
Name |
Elín Fjóla Þóransdóttir |
Name |
Ágústa Helgadóttir |
Taxonomy |
Category |
Áfok við strönd Hálslóns |
Year |
2022 |
Publisher |
Landsvirkjun |
Keywords |
Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á áfoki, vöktun, fokgirðingar. |