LV-2017/101 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.
More info |
Title |
LV-2017/101 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns. |
Subtitle |
Áfangaskýrsla 2017 |
Description |
Sumarið 2014 hófst vöktun og mælingar á áfoki við austurströnd Hálslóns og í norðurhluta Kringilsárrana að beiðni Landsvirkjunar. Eftirlitsferð var farin í júlí 2017 þar sem mælireitir voru ljósmyndaðir og útbreiðsla áfoks mæld. Mælibúnaður sjálfvirkra mælitækja var yfirfarinn og nýtt áfoks- og landbrots- eftirlitsmyndavélakerfi var sett upp við þau. Engin ummerki voru um áfok við austurströnd Hálslóns í júlí 2017 og voru því hvorki teknar ljósmyndir né gerðar mælingar þar. Niðurstöður úttektarinnar í Kringilsárrana sýna að nyrst í rananum, þar sem mikið landbrot hefur orðið eru ummerki um aukið áfok á nokkrum svæðum. Það er þó í litlum mæli. Það sama má segja um áfoksgeirann sunnan Hrauka. Á öðrum svæðum í Kringilsárrana hefur útbreiðsla áfoks lítið breyst frá 2016. Niðurstöður frá sjálfvirku mælistöðvunum sýndu einnig fram á lítið sem ekkert áfok. |
File |
|
Authors |
Name |
Ágústa Helgadóttir |
Name |
Elín Fjóla Þórarinsdóttir |
Name |
Jóhann Þórsson |
Taxonomy |
Category |
Áfok við strönd Hálslóns |
Year |
2017 |
Publisher |
Landsvirkjun |
Keywords |
Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á
áfoki, vöktun með ljósmyndum, áfoksgeirar,
sjálfvirkar mælistöðvar með Sensit kornateljurum,
fokgirðingar. |