LV-2016/119 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns.
More info |
Title |
LV-2016/119 - Úttekt og mælingar á áfoki við strönd Hálslóns. |
Subtitle |
Áfangaskýrsla 2016 |
Description |
Sumarið 2014 hófst vöktun og mælingar á áfoki við austurströnd Hálslóns og í norðurhluta Kringilsárrana að beiðni Landsvirkjunar. Ljósmyndun mælireita og mælingar á útbreiðslu áfoks fóru fram í júlí 2016. Niðurstöður úttektarinnar sýna að við austurströnd Hálslóns voru ekki ummerki um aukið áfok og sama má segja um norðurhluta Kringilsárrana. Í suðurhluta Kringilsárrana hafði útbreiðsla áfoks aukist frá 2015 og einnig hafði áfoksgeirinn stækkað aðeins til norðausturs. Flest bendir þó til þess að í báðum tilfellum sé um að ræða tilflutning eldri áfoksefna fremur en að ný áfoksefni hafi borist frá lónstæði Hálslóns. Tvö lítil áfokssvæði bættust við norðan Hrauka en þar eru vísbendingar um að áfoksefni berist bæði frá lónstæði og úr rofbökkum á svæðinu. Tveir áfoksstormar mældust við sjálfvirkar mælistöðvar í áfoksgeiranum síðsumars 2016 eftir að mælingum lauk. |
File |
|
Authors |
Name |
Ágústa Helgadóttir |
Name |
Elín Fjóla Þórarinsdóttir |
Name |
Jóhann Þórsson |
Taxonomy |
Category |
Áfok við strönd Hálslóns |
Year |
2016 |
Publisher |
Landsvirkjun |
Keywords |
Hálslón, Kringilsárrani, áfok, mælingar á
áfoki, vöktun með ljósmyndum, áfoksgeirar, sjálfvirkar
mælistöðvar með Sensit kornateljurum, fokgirðingar. |